|
20.10.2007 22:29:37 / srbjarni
þá er maður búinn að svæfa strákana en við verðum nú konulausir fram á mánudag. strákarnir eignuðust nefnilega systur á fimmtudaginn var 18okt kl. 22:40. prinsessan vóg 3790gr eða 15 merkur og 52cm var lengdin. hélt ég gæti bara eignast stráka en nú hef ég líklega lokið skylduverki mínu með því að koma báðum kynjum í heiminn og get nú tekið langþrátt frí frá stanslausum æfingum og farið að einbeita mér að einhverju öðru ha ha. næst á dagskrá er að sækja stúlkurnar á mánudaginn og koma þeim heim, svo þarf að ákveða hvenær á að skíra en það er víst búið að ákveða nafnið og verður gaman að vita hvað það verður ? svo er óvissuferð hjá mér 2nóv í góðra vina hópi slökkvuliðs alcan, þannig að það er margt framundan. jæja þangað til næst hafið það sem best.
»
07.10.2007 00:36:10 / srbjarni
Kominn í mánaðarfrí og styttist í 3 erfingjan. Konan sett 11.okt og vonandi verða ekki tafir svo að fríið nýtist sem best. Ef einhver þarna úti lumar á góðu ráði til að koma henni af stað þá væri það vel þegið. Nú reynir á hversu vel ég kann að meta Grundarfjörð en ég fer ekki til rvk fyrr en sennilega 2.nóv þegar ég fer í óvissuferð með slökkvuliði Alcan þannig að ég verð hérna núna í mánuð án þess að fara burt.
»
17.09.2007 13:31:11 / srbjarni
ætli það sé ekki kominn tími fyrir nokkur orð frá mér. nú er liðin rúm vika síðan ég flutti til grundarfjarðar og við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir í leiguhúsnæði að hrannarstíg 4. verðum sjálfsagt hérna í minnsta kosti 6mánuði meðan húsið okkar er í byggingu. sjálfur bý ég á tveimur stöðum en ég dvel hjá jóhönnu systir meðan ég er í vaktarsyrpunni í álverinu og kann ég henni æðislegar þakkir fyrir. kannski það sem maður hefur fundið mest fyrir að búa út á landi er hvað allt er stutt frá manni þannig að bíllinn er varla hreyfður og maður fer allt gangandi sem er frábært og mun hollara. ég kem svo með fleiri fréttir þegar meiri reynsla er komin á þetta. ps vinir og vandamenn eru velkomnir í kaffi hvenær sem er ef þið viljið kíkja á þetta hjá okkur.
»
02.08.2007 01:11:21 / srbjarni
jæja nú er borgarstrákurinn að nálgast það
að verða grundfirðingur. flyt um næstu mánaðarmót í
leiguhúsnæði á grundarfirði á meðan ég er að byggja. þannig
að nú mega grundfirðingar fara að vara sig. En þar sem ég
ætla vinna áfram í álverinu þá verð ég helminginn af árinu
áfram í kópavogi og þá spyr maður sig verð ég þá kallaður
kópavogsbúi, grundfirðingur eða kannski bara
vitleysingur.
Í vinnunni eru rædd hin og þessi mál eins og í
gær sagði einn vinnufélagi okkur frá því að síðasta hugsun sín áður
en hann fór að sofa eftir næturvakt var sú hvort annar vinnufélagi
hefði rúnkað sér fyrir svefninn... vá myndi maður vilja vita ef
einhver hugsaði svona til manns. held ekki en menn eru
misruglaðir.
»
30.05.2007 23:01:21 / srbjarni
hello hello konan fór til spákonu fyrr í kvöld
og það var ótrúlegt hvað hún vissi um okkur. en samkvæmt
henni þá erum við að fara að flytja úr bænum jafnvel fyrir
jól. henni fannst við stefna annað hvort nálægt selfossi eða
vestur fyrir borgarnes. ég mun skipta um vinnu og verða mjög
sáttur við þessi vistaskipti. við eignumst strák samkvæmt
henni en við munum eignast stelpu seinna. hjaaalp þá verða
þau allavega fjögur ha ha. þá er bara að fara semja við
konuna um öll fríðindin sem ég á að fá fyrir að flytja út á
land td. enska boltann, meira kynlíf, nudd, meiri bjór ofl.
meira seinna kveðja verðandi sveitalubbi.
»
16.04.2007 22:46:48 / srbjarni
jæja þá er heilsuátakið byrjað á vaktinni og
erum við nokkur sem ætlum að taka á því. fyrsta æfingin var í
kvöld en við vorum tveir sem mættum. ég dröslaði félaganum í
gegnum fyrst æfinguna en hann bar sig bara nokkuð vel miðað
við að hann gat varla lyft upp höndunum og titraði og skalf.
hvernig verður hann þá á morgun? önnur æfing á morgun og
vonandi mæta þá fleiri til að kvelja.ha haha. þetta verður
erfitt fyrstu vikurnar en við verðum komin í hörku-form í lok
sumars og getum loksins farið að láta sjá okkur í litlum
speedo sundskýlum í sundi jam jam stelpur.
»
10.04.2007 10:33:24 / srbjarni
fyrirgefið mér hvað það er langt síðan ég
skriftaði síðast.
ég hef verið vondur strákur og bið ykkur um
syndaaflausn.
á laugardag fór ég til grundarfjarðar með fullan
bíl af bjór en kom til baka í gær með allan bjórinn til
baka(skemmdur gaur). svo þegar ég kom heim í gær fór ég beint á
aukavakt og fer aftur í kvöld. eins gott að vaktin frétti þetta
ekki með bjórinn þá fæ ég engan frið.
hvað ætli ég þurfi að fara með margar maríubænir
til þess að fá fyrirgefningu þessara alvarlegu syndar eða væri
flenging betur við hæfi. hvað finnst ykkur?
»
28.03.2007 10:20:57 / srbjarni
nú er farið að styttast í kosningarnar í
hafnarfirði um stækkun álversins í straumsvík og spennan
magnast. ætla hafnfirðingar virkilega að hafna þessari búbót
og fá frekar einhvern annan iðnað á svæðið sem bæði skilar
mun minna til bæjar-félagssins og mun færri störfum.
umhverfisinnar takið nú höfuðið upp úr sandinum og sýnið smá
skynsemi. reynið frekar að aðstoða alcan og hafnarfjörð við
leiðir til að finna bestu mengunarvarninar en ekki hafna öllu
eins og bölvaðir kommúnistar. ég meina fiskveiðiflotinn
mengar meira en álverin, ætlið þið að sökkva þeim?
svifryksmengun, ætlið þið að taka af okkur bílana? metangaz
frá beljum, ætlið þið að útrýma öllum beljum? nei þið ræðið
ekki þessi mál vegna þess að þau eru ekki í tísku eins og að
mótmæla álverum og skila sjálfsagt ekki eins mörgum atkvæðum
í kassann.
»
25.03.2007 03:07:14 / srbjarni
hæ hæ var að koma heim af kvöldvakt og allir
sofnaðir. þvílíkur friður næstum himneskt. sit við tölvuna
með vodka í trópi og læt hugan reika.langaði að deila með
ykkur einni pælingu. ef vinstri-grænir væru búnir að stjórna
landinu í segjum 15-20ár, hvernig væri staðan í dag? allt
væri bannað og þúsundir manna að tína fjallagrös á sama
blettinum. en það sem væri verst að bjór væri bannaður og
sjálfsagt allt vín líka og þá væri ég hreinn sveinn. nei
andskotinn guð forði okkur frá þesssu böli.
»
21.03.2007 10:59:07 / srbjarni
jæja þá er maður byrjaður að blogga, hver
hefði trúað því?
fór í mína fyrstu jeppa-ferð á sunnudaginn en var ekki mjög heppinn
með veður. blindbylur og útsýnið sama og ekkert.
en djöfull var það hressandi að komast aðeins út
úr bænum í hreinna loft.
skrítið að vera í frí allt vaktarfríið manni
finnst eins og maður sé búin að vera í frí í margar
vikur.
hafið þið pælt í því hvort fólkið í kringum ykkur
líkist öðrum dýrum
í náttúrunni. t.d. finnst mér ég líkjast híenu en
aðrir hafa bent mér á að ég líkist heilalausum krossfiski en svona
er sýn manna mismunandi. á vaktinni minni höfum við fjölbreytt
úrval dýra eins sæfifl og blöðrusel en gaman væri að heyra skoðanir
fólks á því hverjum þeim finnst þeir líkjast.
»
|